Posted by: Dídí on: 25. febrúar, 2008
Vikan endaði ágætlega. Svona leit hún út að lokum:
Skyldan
Fiskur 5x
Kjöt 3x
Lifur 1x
Valið
Feitur ostur 6x
Magur ostur 3x
Morgunkorn 1x
Kjúklingur 1x
Extra
18/21
Fiskurinn var ekki nógu oft, osturinn allt of oft. Þetta eru svona helstu niðurstöðurnar. Þetta var náttúrulega vika eitt í brýningu og hún byrjaði líka á miðvikudegi svo þetta var í raun ekki heil vika. Næst skal ég hafa fisk 7x og ost hámark 4x. Extrað vil ég helst hafa í 15 krossum eða undir. Vatnið gengur vel myndi ég segja en kókdrykkjan er ennþá helst til of mikil. Er að trappa mig niður.
Svo er ég líka orðin allt of háð tyggjói og slíku, verð að hætta þessu sífellda narti alltaf. Það viðheldur náttúrulega bara nartþörfinni að vera sífellt að stinga upp í sig nýju tyggjói. Maður verður að vera ábyrgur og taka aðeins í taumana á sér.
Svo er vigtun á miðvikudag, kemst raunar ekki á fundinn vegna anna en ég ætla nú samt í vigtun. Ætla í fitumælingu, verður spennandi að sjá hverju munar á þessum síðustu tíu kílóum. 
Annars er ég að vonast eftir stórri tölu, einn komma eitthvað. Einn komma fimm er draumurinn og ég er í raun merkilega bjartsýn með það! Fékk náttúrulega skítlega útkomu seinast (300 g) en þá var ég á túr og það hefur nú alltaf áhrif á vatn í líkamanum og svona. Þið megið endilega krossa putta fyrir mig, mig langar ferlega að ná 35 fyrir páska, eða komast allavega sem næst því.
Kv, Dídí
Þú ert svo dugleg, trúi ekki öðru en að vigtunin sýni einhverja skemmtilega tölu sem þú verður ánægð með
Krossa putta fyrir þig 
Ég er viss um að við fáum báðar góða niðurstöðu á morgun
Glóin
krossi krossi putt!!!
wtf með þessa ítali???
eru þeir að leita að íslenskum uppskriftum??
bestu kveðjur og eigðu góðan
*Krossa putta*
Gangi þér vel!
rosa spenningur oboj oboj, krossi kross,
ég krossa líka bæði fingur og tær – endilega láttu okkur vita hvernig gekk…..þú ert svo svakalega dugleg stelpa !!!!
ég er svo spennt er alltaf að kíkja á síðuna þína
25. febrúar, 2008 kl. 17:29
Verður gaman að sjá hvað kemur úr næstu vigtun… hlýtur amk að vera meira en síðast
Alveg viss um að það verði eitt komma eitthvað
Vikan hjá þér er nú fín… þó að þú hafir viljað borða fisk oftar og ostinn sjaldnar