Posted by: Dídí on: 23. febrúar, 2008
Matarboðið mitt færðist upp um dag og var í kvöld, ég lagaði súpuna og kom hún mjög vel út í þetta skiptið.
Mexíkósk súpa f. sex
3 rauðlaukar, mjög smátt skornir
6 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk olía
3 dósir niðursoðnir tómatar, maukaðir
1 stór teningur kjúklingakraftur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
1 stór teningur nautakrafur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
3/4 l tómatsafi
Vatn í einni tómatdós
3 tsk kóríander
3/4 – 1 tsk chili duft
3/4 – 1 tsk cayenne pipar
Hitið olíu í potti og látið lauk malla rólega í nokkrar mínútur eða þangað til hann byrjar að verða mjúkur. Bætið hvítlauk saman við og hrærið áfram í stuttu stund. Passa verður að hvítlaukurinn brúnast ekki því þá verður hann bitur og vondur. Blandið öllum hinum hráefnunum saman við og látið malla með loki í 25-30 mínútur. Hrærið í af og til.
2-3 kjúklingabringur (má sleppa)
1 dós 10% sýrður rjómi, hrærður
1 poki pizzuostur
Nokkrar Doritos Dippas (fyrir þá sem eru ekki á danska)
Skerið kjúklingabringurnar í bite size bita og steikið á pönnu þar til gegnumsteiktir. Vigtið 400 grömm af súpu á hvern disk og 40-60 g af kjúkling þar ofan í. Skreytið hverja súpu með smá sýrðum rjóma (25-50 g) og 25 g pizzaosti. Fyrir þá sem eru ekki á danska er gott að setja nokkrar flögur út í líka.
Sé súpunni skipt í sex skammta er 1 extra kross í hverjum skammti.
Mér finnst súpan eiginlega betri án kjúklingsins og nota ég þá 25 grömm af osti í súpuna og geri mér svo Quesadillas með öðrum 25 g af osti.
Quesadillas fyrir 4 gráðuga
8 litlar tortillur (45 g stykkið)
200 g taco sósa
1/2 gul paprika
1/2 rauðlaukur
50 g sýrður rjómi (10%)
Pizzaostur
Skerið paprikuna og laukinn mjög smátt og blandið saman við tacó sósuna og sýrða rjómann. Hitið eina tortilla köku á þurri pönnu og stráið 12,5 grömmum af osti yfir hana. Látið lok yfir pönnuna og leyfið ostinum að bráðna. Setjið svo u.þ.b. 1/8 af taco blöndunni á annan helminginn og brjótið kökuna saman. Leyfið kökunni að hitna í smá tíma
og setjið svo á disk. Endurtakið 8 sinnum. Skerið hverja köku í 3 þríhyrninga og berið fram.
Hverjir sex bitar eru þá 25 g af osti, 50 g taco sósa (1 extra kross), 1/4 mjólkurskammtur og smá grænmeti. Þetta eru 90 grömm af brauði svo þið verið að geyma allan brauðskammtinn og selja einn ávöxt.
mmmm hvað þetta er girnilegt, ég ætla sko að prufa þetta bráðlega nammi namm
Mmmmmmmm hvað þetta er ógó grinó hjá þér, verð að prufa svona við tækifæri!! Gangi þér áfram geðveikt vel!
Ég gerði einmitt svona súpu eftir að ég sá þetta hér á sunnudaginn. Mexikóspúpan er uppáhalds súpan mín og ekki verra að hún sé ddv væn..
sammála, soldið sterk, en þegar maður er komin með ostinn og sýrða þá finnst mér hún perfect!! Bauð foreldrunum í mat og þau voru sátt líka! Kærastinn fattaði líka að það er hægt að nota hana sem salsasósu hehe
23. febrúar, 2008 kl. 2:08
Sæl
Er að koma mér af stað aftur í DDV. Líst ekkert smá vel á hvað þér gengur vel! Til hamingju með það!! Ég missti tæp 20 kg á sínum tíma (2 ár síðan) en því miðuuuuur datt ég úr sambandi þegar við fórum í helgarferð útá land.. hélt ég mætti nú alveg taka eina helgi í smá sukk. en það var klárlega byrjunin á slæmu ferli:( það þarf lítið til að klúðra..
En þú mættir alveg senda mér lykilorðið, langar endilega að fylgjast með þar sem þú ert mjög mikil hvatning fyrir mig að koma mér af stað aftur og taka þetta með trompi..
Þarf að missa allavega 40-50 kg svo nú er það bara harkan sex!
kv. Guðrún