Dídí í átaki

Gengur vel

Posted by: Dídí on: 22. febrúar, 2008

Mér gengur vel í þessu átaki innan átaks. :) Hef ekkert extra borðað og er á góðu róli með það. Ég er núna búin að borða fisk 3x í vikunni og fyrir rest verður það 5-6x. Það er svo sem ok, en ég stefni á fisk 1x á dag í næstu viku eða því sem svarar því. Gosið er ekki jafn auðvelt, á miðvikudag fékk ég mér tvö glös og hélt mér því innan marka en í gær fékk ég mér 3 glös. Ég var í afmælisboði og fékk mér tvö glös þar og svo þurfti kallinn endilega að fara að drekka gos um kvöldið og ég stóðst ekki mátið. Vona að hann fari að hætta þessu litla átvaglið mitt atarna! Hann er á sífelldu kex, nammi, gos etc. sumbli alla daga. Hann hefur í raun versnað eftir að ég byrjaði á danska. Ætli hann hafi ekki takmarkað þetta í denn af því að hann vildi ekki halda þessu að mér. :lol: Samt er drengurinn alltaf í neðri mörkum eða undir kjörþyngd. *dæs* Og já, hann er ekki að æfa! Óþolandi misskipt þessi grunnbrennsla og hneigingar til fitusöfnunar.

En anyways, ég verð með matarboð á morgun. Ætla að gera súpuna mína góðu, þarf að fiffa uppskriftina eitthvað til, hún er ekki alveg að duga. Upphaflega gerði ég bara einn skammt og svo þegar ég margfaldaði hana þá fór hún í klessu, eða raunar í vatn! Lap þunnt helvíti alveg.

En ég er farin babes, Nóra litla vill athygli, henni leiðist þessi endalausa bloggmennska í mér alltaf hreint. ;)

3 svör to "Gengur vel"

Hey það er nú lágmark fyrir kallinn þinn að laumupúskast þá bara með gúmmulaðið það gerir minn allavega ;) (laumar sér í þegar ég er farin að sofa hahahaha)
Ætla einmitt að prófa súpuna góðu líka um helgina hlakka ekkert smá til :)
Góða helgi!

gott að það gengur vel :)
Minn kall er einmitt mjög tillitsamur og það fer engin óhollusta hér inn fyrir dyr, hann fær yfirleitt bara eitthvað þannig ef við förum í heimsókn, því vinnufélagarnir eru í nammibindindi :)

Gangi þér vel

Þú ert bara rosalega dugleg. Ég reyni ekki einu sinni að sleppa gosinu sko ;)

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

febrúar 2008
M Þ M F F L S
« jan   mar »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829