Posted by: Dídí on: 18. febrúar, 2008
Ætlaði í bíó í gær, þrjúbíó. Þegar við komum á staðinn klukkan fimm mínútur í þrjú var uppselt!
Langt síðan maður hefur lent í því!
En við fórum með tengdó á American Style og ég pantaði “nautasteik”. Ég set orðið nautasteik í gæsalappir þar sem þetta var frekar beljusnitsel. Þetta var sundurlamin snitselsneið, og hún var ekki einu sinni það góð! Svo bað ég um að fá sósur til hliðar en fékk bara eina sósuna til hliðar. Það var semsagt sósa ofan í bökuðu kartölfunni minni, sem ég sópaði bara úr, og svo sósa á salatinu. Svo náttúrulega gleymdi ég alveg að borða grænmeti þegar ég kom heim. Hálfgert klúður.
Gat ekki borðað það fyrir þar sem ég var úti allan daginn.
En dagurinn í dag gengur bara eins og venjulega. Svo er atvinnuviðtal á morgun. Verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því!
Later!
Breik a legg
Gangi þér vel í viðtalinu
Gangi þér vel í viðtalinu
Og mundu bara að setja egóið á hæsta styrk áður en þú ferð inn ![]()
Glóin
Hvernig gekk? og já til hamingju með að vera búin að missa meira en 30 kíló… ekkert smá dugleg!
Ta ghet propes risù! Sìe drè a pensà la stesa roba apò me.
Ma possibile che becco Henry Calvino anche qui ???
Italia loves Islanda
18. febrúar, 2008 kl. 21:19
ohhh fúlt með bíóið en svona er þetta. Mín reynsla af “Stylenum” er kjúllinn hann er bestur og þá í salati og sósa on the side
haf að vísu ekki farið þangað í DDV lífinu þannig að kannski er hann ekki góður fyrir okkur en ég fékk mér oft salatið þegar við fórum fjölskyldan þangað. Gani þér vel í viðtalinu