Dídí í átaki

Mexíkósk kjúklingasúpa

Posted by: Dídí on: 15. febrúar, 2008

Ég gerði þessa uppskrift um daginn og er rosa hrifin af henni. Get vel mælt með henni í matarboð eða ef þið viljið gera vel við ykkur!

Mexíkósk kjúklingasúpa f. sex
3 rauðlaukar, mjög smátt skornir
6 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk olía
3 dósir niðursoðnir tómatar, maukaðir
1 stór teningur kjúklingakraftur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
1 stór teningur nautakrafur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
1 1/2 l tómatsafi
1 l vatn
3 tsk kóríander
3/4 tsk chili duft
3/4 tsk cayenne pipar

Hitið olíu í potti og látið lauk malla rólega í nokkrar mínútur eða þangað til hann byrjar að verða mjúkur. Bætið hvítlauk saman við og hrærið áfram í stuttu stund. Passa verður að hvítlaukurinn brúnast ekki því þá verður hann bitur og vondur. Blandið öllum hinum hráefnunum saman við og látið malla með loki í 25-30 mínútur. Hrærið í af og til.

2-3 kjúklingabringur
1-2 dós 10% sýrður rjómi, hrærður
1 poki pizzuostur
Nokkrar Doritos Dippas (fyrir þá sem eru ekki á danska)

Skerið kjúklingabringurnar í bite size bita og steikið á pönnu þar til gegnumsteiktir. Vigtið 400 grömm af súpu á hvern disk og 40-60 g af kjúkling þar ofan í. Skreytið hverja súpu með smá sýrðum rjóma (25-50 g) og 25 g pizzaosti. Fyrir þá sem eru ekki á danska er gott að setja nokkrar flögur út í líka.

Sé súpunni skipt í sex skammta er 1 extra kross í hverjum skammti.

———–

Þetta er ótrúlega gott, alveg óhemju gott. Þetta er eins og þið sjáið hádegismatur og þá vantar eiginlega brauð með og þá er hægt að gera quesadillas til dæmis. Ein lítil tortilla er í kringum 45 grömm og við getum reiknað með smá afföllum. Eins og hægt að nota stóra (60 g) og hafa þá morgun- og hádegisbrauð eða hádegisbrauð og skipta ávexti út fyrir brauð.

Gott quesadillas væri t.d. bara smá ostur (stela úr súpuskammtinum eða minnka kjúklinginn á kostnað osts), 25-50 g sýrður rjómi, salsa sósa, fersk og/eða keypt eða eitthvað grænmeti sem þér finnst gott. Blanda saman og setja á eina tortillu. Brjóta hana svo saman og hita á þurri pönnu í nokkrar mínútur á hvorri hlið. Skera svo í fallega þríhyrninga og bera fram með salsa (ferskri eða keyptri) eða sýrðum rjóma, jafnvel guacamole. Bara passa sig að of stuffa þær ekki. :)

Njótið! Það ætla ég að gera á laugardaginn!!

11 svör to "Mexíkósk kjúklingasúpa"

UMMMM takk dídí ….um ætla að gera svona á laugardaginn …ekki spurning.

ertu að hreyfa þig eitthvað eða er þetta bara matarræðið?

Jummí ekkert smá girnilegt

langar að fylgjast með hjá þér er sjálf í böl,,,,vu’u basli með kílóin gæti ég fengi’ password.

HÆ gaman að fylgjast með svona DDV snillingi eins og þér, er sjálf að byrja og alveg ómetanlegt að geta skoðað bloggið þitt.. Algjört pepp að kíkja hingað inn;-) Allavega, gæti ég fengið passwordið hjá þér… Kveðja Íris

Þá veistu það…Ég ætla að prufa þetta einhverndaginn, jummí. Er búin að C/p þetta inn í word. Rosa girnó

Voðalega ertu dugleg að búa til uppskriftir! Vildi að ég væri svona klár;) En annars bara æðislegt hjá þér skvís! Finnst alveg æðislegt að sjá myndirnar af þér sést sko alveg hvað þú ert happy og ánægð núna:D

Geðveika súpan maður minn,
ógeðslega góð.
En ein spurnig samt er þetta ekki svolíið mikið af vökva í hana, 2 og hálfur lítri það er 425 gr af vökva á mann.??
Ég bætti útí sveppum og ferskum tóm
Takk fyrir mig

Jú, þetta var eitthvað vitlaust hjá mér, gerði hana áðan og hún varð allt of þunn. Þetta mættu vera svona hálfur l vatn plús 1/2 – 1l tómatsafi myndi ég halda. :)

Didi cara, dovresti provare le trenette o le trofie al pesto, altro che la cucina messicana!!
Comunque hai un viso pacioccoso e dolcissimo, devi essere una persona molto solare, hai un sorriso contagioso!

[...] perche’ intanto il nome e’ autoesplicativo, secondo perche’ ho pescato a caso questo post che credo spieghi la ricetta di qualcosa di Messicano, e non potevo tralasciarlo visto la mia [...]

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 90,892 hits

a

Sarpur

 

febrúar 2008
M Þ M F F L S
« jan   mar »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829