Dídí í átaki

Tölfræðin og myndirnar

Posted by: Dídí on: 14. febrúar, 2008

Jæja, þá er ég búin að setja myndir. Ég er ekki frá því að ég sjái mun frá 25 kílóa myndunum þrátt fyrir að ég sé í öðrum fötum. Þá aðallega um mig miðja og mögulega upphandleggirnir, hvað sýnist ykkur? :P Ég er svo svekkt yfir þessum stalli sem ég er með aftan á mér. :? Hann kom reyndar fyrst og fer því væntanlega seinast… Vil að hann fari að minnka!

En í tölfræði fréttum er þetta helst: Það fóru 15 sentimetrar af aðalmælistöðum og 7,5 af aukamælistöðum. Þetta virðist haldast nokkuð jafnt, alltaf kringum 15 cm, skondið. :) Samtals hef ég þá misst 108,5 cm af aðalmælistöðum og 43,5 af aukamælistöðum. Ekkert smá magn af sentimetrum! 1,52 metrar! :lol:

Einnig er gaman að segja frá því að BMI stuðullinn minn hefur lækkað um heil tíu stig, úr 51,8 niður í 41,35, stór breyting þar!
Svo til að fara aðeins lengri ofan í saumana á tölfræðinni þá er ég með meðaltal upp á 0,94 kíló á viku, ég er búin að missa 20,1% af heildarbyrjunarþyngd minni og er ég búin með 40,4% af þeim kílóum sem ég ætla að missa í heild. Hljómar vel verð ég að segja. :)

E.s. Ég er alveg búin að týna mér í að senda út lykilorð svo ef þið hafið beðið um en aldrei fengið sent þá endilega minnið mig á það. :)

11 svör to "Tölfræðin og myndirnar"


Má ég fá lykilorðið hjá þér? Mig langar að sjá hvernig gengur :)

kv Unnar

Hæ var að kíkja á myndirnar og ég segji bara innilega til hamingju með þennan frábæra letting.Gangi þer vel áfram.
Og að lokum húrra húrra fyrir þer.Gaman þegar að maður finnur svona góðan árángur.
Baráttukveðjur ,,,,glingglo,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,,

Þetta er algjörlega frábært. Á sama tíma og ég samgleðst þér innilega með kílóin 30, þá langar mig líka að lemja þig! Hahahha..öfundin að drepa mig :þ

Það er ótrúlegt að sjá þennan mun á þér, svo létt yfir þér :)
Já það er alltaf gaman að spá í tölum og það að vera búin með rúm 40% er hellingur og svo stutt í 50%……..og svo framvegis!
Gangi þér áfram svona vel

Mér finnst alveg rosalega mikill munur á þér a síðustu 5 kg. Fyrir mér þá ertu að breytast svo mikið, byggingarlega séð. Mér finnst núna eins og ný manneskja sé að koma í ljós þannig að það er eins og 0-25 kg hafi veirð einn kafli… og nú er annra að taka við :) Andlitið er að breytast alveg svakalega :)

Nú er ég spennt að sjá myndir, mér þættir rosa vænt um að fá lykilorð :)

Já vá hvað það er munur á þér þessi síðustu 5 kg. Andlitið er að koma svo rosalega vel í ljós, kinnarnar búnar að minnka alveg rosalega. Það er sko stórmunur. Bara æðislegt að sjá þetta. Og eins bara er líkamsbyggingin að koma betur í ljós. Þetta er greinilega einhver breytingarpunktur sem þú hefur farið yfir. Þú ert bara æðisleg Dídí :D

Hvað á maður að segja eiginlega, ég er bara orðlaus yfir þessum myndum og vá! það er sko mega munur á þessum 2 síðustu myndum. Var með nokkrar vinkonur í heimsókn í gær og við fórum að ræða DDV og allt það og ég bara varð að sýna þeim hvað þú ert mikil hetja, vona að það hafi verið í lagi, sagði þeim samt ekkert lykilorðið :)
Vá hvað ég hlakka til að taka 20 kg myndir af mér, 6 kg í það ;)

:lol: Stelpur ég er búin að stara og stara á myndinar og jú, ég sé breytingu en ekki svona mikla eins og þið talið um! :lol: En gaman að heyra að það sést mikill munur!
Gerður, ekkert mál að sýna myndirnar. ;)

Ég einmitt sé svo rosalegan mun núna :) En betur sjá augu en auga þannig að þú verður bara að trúa okkur! :p

Mig langar lika i lykilord
graeneygd@mac.com

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,859 hits

a

Sarpur

 

febrúar 2008
M Þ M F F L S
« jan   mar »
 123
45678910
11121314151617
18192021222324
2526272829