Posted by: Dídí on: 29. febrúar, 2008
Ég fór í fitumælingu í seinustu vigtun og var fyrst núna að bera saman við gömlu tölurnar. Hérna er þetta, allt sett upp í rosa fínu töflu, mjög svo ég.
.
18.07.07
29.08.07
28.11.07
27.02.08
Þyngd
146,1
139,2
127,9
117,4
BMR kcal
2266
2199
2091
1990
Fat %
56,1%
55,4%
52,2%
51,1%
Fat mass
82,0
77,1
66,8
60,0
FFM
64,1
62,1
61,1
57,4
TBW
46,9
45,5
44,7
42,0
BMR [...]
Posted by: Dídí on: 28. febrúar, 2008
Átti erfiðan dag í dag.
Hjálpaði svo ekki til þegar ég var að labba niður Laugaveginn að þrír strákar hægðu á sér og keyrðu meðfram mér. Skutu úr einhverjum grjónabyssum að mér og spurðu hvort mér þætti gott að fá skot í rassinn. Ég snéri mér við og spurði hvort þeir væri þriggja, nei, tjáðu þeir [...]
Posted by: Dídí on: 27. febrúar, 2008
Júbbí!!
Það fór 1,8 kíló! Gæti ekki verið ánægðari! Eiginlega bara orðlaus. Veit ekkert hvað ég á að segja! Held að ég segi bara takk fyrir mig!
Posted by: Dídí on: 25. febrúar, 2008
Vikan endaði ágætlega. Svona leit hún út að lokum:
Skyldan
Fiskur 5x
Kjöt 3x
Lifur 1x
Valið
Feitur ostur 6x
Magur ostur 3x
Morgunkorn 1x
Kjúklingur 1x
Extra
18/21
Fiskurinn var ekki nógu oft, osturinn allt of oft. Þetta eru svona helstu niðurstöðurnar. Þetta var náttúrulega vika eitt í brýningu og hún byrjaði líka á miðvikudegi svo þetta var í raun ekki heil vika. Næst skal ég [...]
Posted by: Dídí on: 24. febrúar, 2008
It was funny for the first couple of comments, the next 4 or 5 comments were tolerable but this is just getting annoying now. Any comments in languages other than Icelandic will from here on out be erased.
Posted by: Dídí on: 23. febrúar, 2008
Matarboðið mitt færðist upp um dag og var í kvöld, ég lagaði súpuna og kom hún mjög vel út í þetta skiptið.
Mexíkósk súpa f. sex
3 rauðlaukar, mjög smátt skornir
6 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk olía
3 dósir niðursoðnir tómatar, maukaðir
1 stór teningur kjúklingakraftur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
1 stór teningur nautakrafur (eða 3 litlir eða 3 tsk)
3/4 [...]
Posted by: Dídí on: 22. febrúar, 2008
Mér gengur vel í þessu átaki innan átaks. Hef ekkert extra borðað og er á góðu róli með það. Ég er núna búin að borða fisk 3x í vikunni og fyrir rest verður það 5-6x. Það er svo sem ok, en ég stefni á fisk 1x á dag í næstu viku eða því [...]
Posted by: Dídí on: 20. febrúar, 2008
Ég fór niður um 300 grömm þessa vikuna. Eins og ég sagði í gær, niður er alltaf niður! Var pínu smeik við að fara upp, engin sérstök ástæða, meira bara hræðsla. Ég er búin að missa svo mikið á hlutfallslega stuttum tíma og svo fór ég yfir þrjátíu, var einhver púki í hausnum á mér [...]
Posted by: Dídí on: 19. febrúar, 2008
Ég fór í viðtalið í dag og brilleraði náttla skoh. Þeim leist allavega vel á mér sýndist mér og ætla að hafa samband á morgun eða hinn. Mér leist hinsvegar ekki alveg jafn vel á vinnuna. Í sumar yrði þetta vaktavinna, á dagvinnutíma raunar, en samt alveg frá 8 – 18 og líka [...]
Posted by: Dídí on: 18. febrúar, 2008
Ætlaði í bíó í gær, þrjúbíó. Þegar við komum á staðinn klukkan fimm mínútur í þrjú var uppselt! Langt síðan maður hefur lent í því!
En við fórum með tengdó á American Style og ég pantaði “nautasteik”. Ég set orðið nautasteik í gæsalappir þar sem þetta var frekar beljusnitsel. Þetta var sundurlamin snitselsneið, og [...]
Nýleg ummæli