Posted by: Dídí on: 27. janúar, 2008
Ég átti bara góða helgi.
Maturinn var mjög góður.
Á fimmtudaginn var fajitas, sem er mjög góður matur en jafnframt auðveldur í eldamennsku.
Hér er mín uppskrift:
2 kjúklingabringur
2 tsk Casa Fiesta Taco seasoning mix
Smá vatn
250 g sveppir í bitur
1 paprika í bitum
1 laukur smátt skorinn
Sýrður rjómi 10%
1 pakki litlar tortillur (u.þ.b. 45 g stykkið)
Taco sósa (hot, medium, mild eftir smekk)
Skerið kjúklingabringurnar í bita og steikið. Kryddið með taco kryddinu og setjið vatn út á pönnuna. Blandið vel og látið malla þar til vatnið er gufað upp og kryddmaukið hjúpar kjúklinginn. Setið kjúklinginn til hliðar og steikið grænmetið. Hitið tortillurnar eftir leiðbeiningum á pakkanum
Nú er komið að samsetningu. Ég smyr venjulega 15 g sýrðan rjóma á kökuna fyrst og set síðan 25 g af taco sósu ofan á. Síðan 50 g kjúkling og 100-150 g steikt grænmeti. Efst set ég síðan 12,5 g sýrðan rjóma. Ég vil, eins og sést, mikinn sýrðan rjóma en það er náttúrulega bara smekksatriði. Ef þú geymdir brauð dagsins og fórnar einum ávexti geturðu fengið tvær svona kökur. Mjög passlegt.
Á föstudaginn var lifur í hádeginu eins og venjulega, hún elskulega móðir mín sér um að elda slíkt fyrir mig, afar hentugt.
Í kvöldmat voru svo Gríms fiskibollur, soðið grænmeti, salat og kartöflusalat. Mér finnst þessar bollur mjög góðar og þær eru í hollari kantinum. Þær reiknast bara eins og unnin matvara og mega því borða 1x í viku. Kartöflusalatið mitt er alltaf jafn gott en svona hljómar það:
Kartöflusalat
100 g soðnar kartöflur (2-3 meðalstórar)
1/2 grænt epli
1/2 rauðlaukur
30 g létt majónes
Kartöflurnar og eplin skorin í bita og laukurinn mjög smátt. Öllu blandað saman í skál. Ef þú vilt meiri “sósu” er sjálfsagt hægt að bæta 1/4 dl sýrðum rjóma út í.
Á laugardaginn var ég svo með soðinn fisk í hádegismat en það hentar vel þegar maður ætlar að svissa kvöldmat og hádegismat. Fiskurinn er hitaeiningasnauðari en margt annað svo hann er góður til að vega upp á móti miklu brauðáti. Með því var ég með grænmetisafganga frá föstudeginum.
Um kvöldið bauð ég upp á pizzu sem eins og venjulega var mjög góð.
Í dag var svo hamborgari eins og svo oft áður, ekki brunch hamborgari þó þar sem ég borðaði hádegismatinn fyrst og svo “morgunmatinn” í kaffinu. Þetta er náttúrulega ekki alveg samkvæmt bókinni um matartíma etc en ég var samt ekkert að fara yfir á hitaeiningum. Í kaffinu voru svo vöfflur. Morgunmatarvöfflur og granateplasulta með. Fínasta uppskrift sem ég fékk frá Kristínu meðbloggara. Vöfflujárnið mitt er hinsvegar algjört drasl og gerði vöfflurnar hálf leiðinlegar.
Morgunverðar vöfflur
1 dl létt ab mjólk
1 egg
10 g létta (smjör)
25 g undanrennuduft
25 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1/4 tsk vanilludropar
Smá sæta
Öllu blandað saman og steik í vöfflujárni.
Í kvöldmatinn var svo lax. Ég keypti lax úr fiskborðinu í Hagkaup sem var marineraður upp úr olíu, hvítlauk og engifer. Ég byrjaði á að láta hann liggja á eldhúspappír í smá stund og þerra af honum marineringuna. Svo steikti ég hann á grillpönnu í 4 mínútur á hlið. Ég bar þetta fram með snöggsteiktum sykurbaunum og sveppum, salati og limebátum til að kreista yfir. Þetta var rosalega gott, laxinn var pínu crispy og marineringin góð. Man ekki hvort ég var búin að láta ykkur hafa uppskriftina af snöggsteiktu sykurbaununum en allavega here goes:
Snöggsteiktar sykurbaunir og sveppir
2 tsk olía
1 pressað hvítlauksrif
250 g sveppir
150 g sykurbaunir/snjóbaunir
Hitið olíuna og pönnu og hitið hvítlaukinn í henni. Hvítlaukurinn má ekki verða brúnn því þá kemur beiskt bragð. Þú ert í raun að infjúsa olíuna með hvítlauksbragði. Eftir smástund þá hækkarður hitann í mesta og lætur sveppina út í. Þá snöggsteikirðu í 1 – 1 1/2 mínútu. Síðan seturðu sykurbaunirnar út í og snöggsteikir áfram í mínútu. Það er allt og sumt!
Jæja, þá er matarhlutinn af þessu bloggi búinn. Á laugardag kom Margrét vinkona í mat og eftir mat skelltum við okkur í keilu. Þetta var í þriðja skiptið sem ég hef farið í keilu og við skulum segja að ég sé enn að læra.
Svo tókum við tvo pool leiki og vann ég báða, reyndar annan á technicality. Síðan kíktum við í bæinn og dönsuðum smá. Ég er orðin alvön að tjútta edrú en Margréti fannst þetta hálf undarlegt, ekki skrýtið þar sem fólk lætur stórundarlega þegar það er fullt.
Núna er ég með harðsperrur eftir lætin og get ekki beðið að komast aftur í keilu og á tjúttið!
glæsó, ohh það er svo gaman að tjútta
Jamm, ansi girnileg bloggfærsla hjá þér, maður fær bara vatn í munninn – fyrir utan lifrartalið reyndar
Mikið ertu dugleg að halda þér í réttu mataræði, ekkert smávegis flott hjá þér.
Þú ert nú meiri matarsnillingurinn, spurning um að opna DDV veitingastað:D Alltaf rekst maður á eitthvað girnilegt þegar maður skoðar bloggið:)
Gott að vöfflurnar voru góðar;)
Namm namm namm! Vonandi í lagi að ég skrifaði þetta niður til að prófa 
Ótrúlegt hugmyndaflug hjá þér
28. janúar, 2008 kl. 9:00
Sæll félagi. Þetta er með þeim girnilegri bloggum sem ég hef nokkurn tíma séð. Ég hef í hyggju að læðast að því og afrita það við tækifæri. Svona eins og maður læðist að sauðum og kallar gibba gibb, hér gæti blogga blogg, komdu hérna litla blogg … gengið . Og svo grípur maður það. En ég er sem sagt heima með mitt kvef til að smita ekki vinnufélagana. Með kveðju frá sveppnum rauðnefi.