Posted by: Dídí on: 23. janúar, 2008
Dagurinn í gær var svo sannarlega dagur nýjunga.
Í morgunmat fékk ég mér lítið baguette brauð með granateplasultu og camenbert osti. Með fékk ég mér appelsínusafa. Í hádegismat gerði ég svo bökuna, botninn varð hræðilega vondur, þurr og bragðlaus, en fyllingin mjög góð. Ég henti því bara botninum. Í kvöldmat gerði ég svo mjög gott Beef stroganoff og ofnbakaðar paprikur fylltar með hrísgrjóna og grænmetisblöndu og smá vinigrette yfir. Allt mjög gott.
Papriku uppskriftin er mín og hún fær að fljóta hér með.
Fylltar paprikur
2 paprikur
4 skallotlaukar
1 hvítlaukslauf
1/2 rauður chilipipar
1/2 kúrbítur
150 g soðin hrísgrjón
10 g olía
Smá balsamic edik
Skerið paprikurnar í helminga og hreinsið úr kjarnan. Setjið þær í ofnfast mót og inn í ofn við 180°c í 20-30 mínútur. Gott er að pensla þær með olíu en ekki nauðsynlegt.
Á meðan paprikurnar eru að bakast skaltu sjóða hrísgrjón, kúskús, quinoa eða hvað annað korn sem þig langar að nota.
Skerðu chili piparinn, hvítlaukinn, skallotlaukinn og kúrbítinn mjög smátt og steiktu létt á pönnu rétt áður en paprikurnar eru til.
Vigtaðu 75 g af grjónum í skál og hrærðu saman við helminginn af grænmetisblöndunni. Fylltu svo tvo paprikuhelminga með blöndunni. Gerðu eins við restina. Að lokum skaltu píska saman olíu og edik og hella yfir hrísgrjónablönduna.
–
Stroganoffið var tekið af amerískri uppskriftasíðu en aðlagað danska.
Beef stroganoff
6 tsk hveiti
Salt & pipar
400 g gúllas eða annað nautakjöt í bitum
1/3 grænmetisteningur (eða einn lítill)
1 bolli heitt vatn
1 meðalstór rauðlaukur
250 g sveppir (má vera meira)
1 dl sýrður rjómi
Blandið hveiti, salti og pipar saman í skál og húðið kjötbitan með blöndunni. Leysið teninginn upp í vatninu og blandið afgangshveiti vel saman við vatnið.
Skerið laukinn í bita og sveppina í þykkar sneiðar.
Steikið kjötið á heitri pönnu með smá olíu í 2 mínútur, hrærið stanslaust. Bætið lauknum við og steikið í aðrar tvær mínútur, hrærið stanslaust. Bætið sveppunum við og steikið í 4 mínútur, hrærið af og til. Bætið soðinu út í og látið malla í fimm mínútur. Takið þá af hellunni og hrærið sýrða rjómanum út í.
–
Fyllingin í grænmetisbökuna, sem var mjög góð, var minn hugarburður en hún hljómar svo.
Fylling í böku
500 g sveppir
1 púrrulaukur (bara þetta hvíta)
1 kúrbítur
100 g gratínostur
4 egg
Skerið í bita, ekki of smáa. Skerið púrrulaukinn og kúrbítinn smátt. Steikið grænmetið og setjið í sigti til að ná mesta vökvanum af. Þeytið saman 4 egg og 50 g gratínost. Setjið grænmetið í ofnfast mót og hellið eggjablöndunni yfir, passið að dreifa henni jafnt. Dreifið að lokum 50 g af gratínosti yfir. Bakið í 20 mínútur, fyrstu 15 við 180° en seinustu 5 við 200 til að ná gylltum blæ á ostinn.
Skerið í fjóra jafna bita. Þá telst hver biti 1 egg, 25 g feitur ostur og u.þ.b. 200 g grænmeti.
–
Ég komst ekki í vigtun áðan en fer í kvöld, blogga svo tölurnar eftir átta þar sem ég er að fara í matarboð.
Hellú sæta:)
Hljómar ekkert smá girnilega hjá þér, sniðugt að tékka á hugmyndum frá þér;) Annarrs með botninn þá þykir mér botninn sem ég gerði rosalega góður, í honum er 30 gr létt majó og 30 gr hveiti (einum of einfalt:D) svo set ég salt og pipar með svo að það sé smá bragð af honum. Prófaði í dag að setja smá lyftiduft með í þeirri von um að hann myndi lyfta sér aðeins, jaaa hann gerði það smá en var stökkari fyrir vikið. Hann lagaðist reyndar þegar ég setti hann í annað sinn inn í ofn með grænmetisblöndunni ofan á.
Tékka á þér á eftir, eftir vigtunina:)
Takk fyrir þessar frábæru uppskriftir. Segðu mér með granateplasultuna – býrðu hana til sjálf eða fæst hún einhversstaðar?
Hehe…maður verður stundum að vera þægur og gera eins og á að gera;) Mér fannst majóið einmitt gera bragðið, annarrs þykir mér líka létt majóið frá Hellmans frekar gott…ennnn ég er líka pínu skrítin:)
23. janúar, 2008 kl. 19:34
úff ég bara slefa við að lesa uppskriftirnar.. hehe stendur þig ekkert smá vel!
Gangi þér vel skvísa og vonandi var léttingurinn góður.
kv
Mimzy