Posted by: Dídí on: 12. janúar, 2008
Var að horfa á Giada’s everyday Italian um daginn, afmælisþáttinn nánar tiltekið og allt sem hún gerði var þvílíkt girnó. Ég ákvað því að prófa eina uppskriftina í gær en það var lax bakaður í álpappír með salsa blöndu ofan á. Þetta kom bara svona vel út og því ætla ég að deila gúmmelaðinu með ykkur. Uppskriftin er aðeins aðlöguð að danska og ég stækkaði hana líka smá.
Lax í álpappír
Þrír skammtar
1 flak lax (600 g)
3 teskeiðar ólífuolía
Salt og ferskmalaður svartur pipar
5 tómatar, velja rauða og vel þroskaða
3-4 litlir skallotlaukar
2 matskeiðar nýpressaður sítrónusafi
2 teskeiðar þurrkað óreganó
2 teskeiðar þurrkað timjan
Forhitið ofnin við 200°c.
Skerið tómatana og skallotlaukinn smátt og blandið saman í skál með olíu, sítrónusafa, óreganó, timjan, salt og pipar.
Setjið laxinn, með roðhliðina niður, á álpappír og saltið og piprið smá. Dreifið svo salsanu jafnt yfir flakið og lokið svo svo álpappírnum vel því flakið á að gufusjóða í pakkanum.
Bakið í 25 mínútur, sé flakið mjög þykkt þá gæti þurft að lengja tímann um 5 mínútur.
Berið fram með fersku salati eða ofnbökuðum gulrótum, sellerí og rófum.
Njótið!
———
Í öðrum fréttum er þetta helst, ég er ennþá veik en þetta er samt allt að koma. Er að fara að gera pizzu í kvöld og hlakka mikið til að snæða hana.
Svo eru bara hamborgarar á morgun en kvöldmaturinn óráðinn.
Ég setti inn nokkrar nýjar uppskriftir, bjó til Brunch dálk þar sem mína útfærslu af hamborgurum má finna og svo setti ég pizzusósuuppskrift og hvítlaukssósu inn í sósur. Mæli með pizzusósunni, hún er rosalega góð og líka hægt að nota hana sem pastasósu eða bara tómatsósu með ýmsum mat, t.d. fisk.
Jæja, eigiði gott laugardagskvöld og sunnudag.
Hljómar ekkert smá girnilega, ætla prófa þessa pottþétt:)
Hæ hæ – byrjuð að blogga aftur og ætla að byrja nýtt átak, gaman að sjá hvað að þú ert enn að hugsa um heilsuna
Jaya
12. janúar, 2008 kl. 18:51
Vonandi hressistu nú fljótt Dídí mín, það er nefninlega ekkert gaman að vera í náttfötunum þegar maður Á að vera það. hehe. Ætla þokkalega að prufa þessa Laxskrift
kveðja Heiða