Posted by: Dídí on: 1. janúar, 2008
Morgunmatur
Hafrakoddar með undanrennu
Appelsínusafi
Hádegismatur
Baguette brauð
Ceviche
Hrátt grænmeti
Kvöldmatur
Kalkúnn
Smá óDDV væn sósa
Smá óDDV væn blómkálssúpa
Graskersmús
Tómatar
DDV vænt waldorfsalat
Kók zero
Snarl
DDV vænn súkkulaðibúðingur
Kirsuber
Granatepli
Kók zero
————–
Mmmm hvað ceviche er gott stelpur! Ætla að deila með ykkur uppskriftinni og mana ykkur í að prófa.
Ceviche fyrir tvo í hádegismat

150-200 g hrár hörpudiskur
150-200 g hráar skellausar risarækjur
1 rauðlaukur
1/2 meðalstór rauður chili pipar
3-4 msk söxuð steinselja
1-2 límónur
Afþýðið fiskinn alveg og þerrið hann svo. Setjið í skál og rífið börk af límónunum yfir. Passið ykkur á að taka bara græna hlutann, alls ekki fara inn í þetta hvíta því það er beiskt og vont. Gott er að nota lemon zester (sjá hér) eða lítið og fínt rifjárn. Kreistið safann úr límónunum yfir fiskinn.
Því næst er rauðlaukurinn, chili piparinn og steinseljan söxuð smátt og blandað við. Skálinni er lokað, t.d. með plastfilmu og hún síðan sett inn í ísskáp. Látið réttinn malla á límónusafanum í 1-2 tíma og hrærið reglulega í, t.d. á 15 mínútu fresti.
Rosalega gott að bera þetta fram með löngu baguette brauði sem er búið að skera í mjóar sneiðar. Best er að skera smá á ská til að fá sem stærstan flöt á brauðið. Hægt er að fá 60 g af brauði ef morgunbrauðið er geymt. Það er algjör draumur að bera þetta fram sem smárétt eða forrétt með góðu hvítvíni en ekki á meðan maður er á danska.
–
Annars átti ég bara fín áramót, það er aldrei jafn mikið stuð hjá tengdó og er hjá minni fjölskyldu um áramótin svo maður saknar þess pínu, en samt overall bara fínt kvöld. Með kvöldmatnum leyfði ég mér svo súpu í forrétt, en þetta var kannski hálf ausa plús nokkrir blómkálshausar og svo sósa til að bleyta í kalkúninum. Það var náttúrulega hveiti í súpunni og sósunni og svo mjólk í sósunni en ég held að það sé ekki hundrað í hættunni.
Svo var ég ekkert að pæla í kók magninu, held að ég hafi kannski farið eitthvað smá yfir líter. Eins fór ég hálfum ávöxt fram yfir skammtinn minn. Þau voru að éta snakk og M&M svo ég sótti mér granatepli til að narta í.
Í kvöld verður svo Roast beef hjá múttu, hún ætlar að gera graskerssúpu sem er í DDV grænmetisbókinni sem ég fékk í jólagjöf. Hlakka til að smakka, eins hlakka ég til að éta nautið, elska bleikt kjöt!
Ég vil óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það liðna. Hlakka til að vera samferða ykkur áfram!
Gleðilegt ár Dídí. Segjum bara að það byrji vel og haldi áfram að verða ennþá betra. Nýárskveðjur með hvelli, frá sveppnum gamla.
Hæ Hæ
Gleðilegt ár.Og takk æðislega fyrir stuðninginn.Og þetta ár verður okkiur gott. Vá hvað uppskriftirnar eru girnilegar ég ætla að prófa það er á hreinu.
Baráttukveðjur,,,,glingglo,,,,,,,,,,
Gleðilegt ár Dídí 
Nammmm .. ekkert smá girnilegt.. verð að prufa þetta á nýja árinu
Gleðilegt ár skvísa
1. janúar, 2008 kl. 18:15
UMMM verð að prófa þetta gúmmulaði
takk fyrir að deila með okkur hinum og GLEÐILEGT ÁRIÐ!
Já 2008 verður svo sannarlega “OKKAR” ár.
Gerður