Dídí í átaki

Archive for janúar 2008

Vikan

Posted by: Dídí on: 31. janúar, 2008

Jæja, þá er ég búin að sjá viðtalið og myndirnar og er bara frekar sátt! Myndirnar komu vel út, fyrir utan hvað augun á mér sjást illa, en þau eru bara svona og voða lítið við því að gera. Nóra mín náði meira að segja að troða sér inn á aðra myndina. [...]

Vigtun þrjátíu

Posted by: Dídí on: 30. janúar, 2008

Hana! Hún fór upp helvísk, um 200 grömm! Átti það alls ekki skilið og vann mér sko ekki inn fyrir því! Er nett fúl með þetta en það er voða lítið sem maður getur gert þegar maður er að fara 100% eftir prógramminu en fer samt upp, þetta er bara einhver sveifla, einhverja hluta vegna [...]

Kaupa kaupa kaupa!

Posted by: Dídí on: 29. janúar, 2008

Guð hvað það er gaman að þurfa að endurnýja fataskápinn sinn af því allt er orðið of stórt á mann! Fór í dag í Smáralindina, ekkert of vongóð, þar sem ég var búin að kíkja í Kringluna og sá ekkert sem mér fannst fallegt, nema þá nýjar vörur sem ég hreinlega tímdi ekki að kaupa. [...]

Helgin

Posted by: Dídí on: 27. janúar, 2008

Ég átti bara góða helgi. Maturinn var mjög góður.
Á fimmtudaginn var fajitas, sem er mjög góður matur en jafnframt auðveldur í eldamennsku. Hér er mín uppskrift:
Fajitas
2 kjúklingabringur
2 tsk Casa Fiesta Taco seasoning mix
Smá vatn
250 g sveppir í bitur
1 paprika í bitum
1 laukur smátt skorinn
Sýrður rjómi 10%
1 pakki litlar tortillur (u.þ.b. 45 [...]

You’ve been kítl’d!

Posted by: Dídí on: 26. janúar, 2008

Hún Erla vinkona kítlaði mig á blogginu sínu og verð ég því að svara nokkrum spurningum. Sjáum til hvernig tekst til.
Sjö hlutir sem ég ætla að gera áður en ég dey:
1. Fara í bakpokaferðalag með honum Bjarna mínum.
2. Ná kjörþyngd og halda henni.
3. Klára Ba próf í íslensku við HÍ.
4. Klára Ma próf [...]

Vigtun tuttugu og níu

Posted by: Dídí on: 23. janúar, 2008

Já góðan daginn! Slétt kíló fokið! Ekkert smá happý, bara alveg að springa! Segir mér að ég er nú þegar farin að kunna það vel að telja og áætla hitaeiningar og geti því alveg, þegar ég er komin í kjörþyngd, leyft mér pizzu og slíkt gotterí af og til og samt viðhaldið réttri þyngd.
Núna er [...]

Dagur nýjunga

Posted by: Dídí on: 23. janúar, 2008

Dagurinn í gær var svo sannarlega dagur nýjunga.
Í morgunmat fékk ég mér lítið baguette brauð með granateplasultu og camenbert osti. Með fékk ég mér appelsínusafa. Í hádegismat gerði ég svo bökuna, botninn varð hræðilega vondur, þurr og bragðlaus, en fyllingin mjög góð. Ég henti því bara botninum. Í kvöldmat gerði ég svo mjög gott Beef [...]

Ný byrjun – endurnærð

Posted by: Dídí on: 21. janúar, 2008

Vá hvað ég sé núna að þetta var í raun mikilvægt fyrir mig, að hleypa gufunni af katlinum. Ég er bara endurnýjuð! Fékk mér morgunkorn í morgun og svo graflax og blómkálssúpu í hádegismat, í kvöld var svo lúða hjá mömmu. Alveg 100% dagur enda var ég alls ekki að búast við öðru. Þetta var [...]

Reset

Posted by: Dídí on: 21. janúar, 2008

Ég er kannski öðruvísi víruð en þið stelpur en ég hreinlega VARÐ að fá smá útrás eftir að hafa verið núna í rúma 6 mánuði á danska kúrnum. Ég varð að endurstilla mig. Það gerði ég með því að leyfa mér hluti þessa helgina sem danski kúrinn lítur illa á.
Á laugardaginn fór ég [...]

Afmæli

Posted by: Dídí on: 18. janúar, 2008

Mágkona mína á afmæli í dag og munum við fjölskyldan fara út að borða og svo í bíó. Við förum að öllum líkindum á Ruby Tuesday og ég hugsa að ég fái mér eftirfarandi að borða:
Best cut of lamb
200 g hvítlaukslegnar lambasneiðar með fersku salati. Borið fram með gufusoðnu brokkolí, bakaðri kartöflu með sýrður rjóma [...]


Nýleg ummæli

allamalla við Enn á lífi
Oscar Ferrari við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
doggin við Enn á lífi
Gerður við Enn á lífi

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 87,967 hits

a

Sarpur

 

janúar 2008
M Þ M F F L S
« des   feb »
 123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031