Dídí í átaki

Dagur hundrað sjötíu og níu

Posted by: Dídí on: 31. desember, 2007

Brunch
Kíví
Hamborgari með öllu tilheyrandi
Spælt egg
Rófur
Kók Zero

Kvöldmatur
Kalkúnaleyfar
Sýrður rjómi + majó + Piri piri + kalkúnakrydd
Steikt paprika, sveppir, kúrbítur og laukur
Allt sett saman í ofnfat og bakað í 30 mínútur
Kók Zero

Snarl
Granatepli
Kirsuber
Klementínur
Undanrenna
Létt jógúrt með vanillu

————–

Ætlaði að hafa fiskréttinn hennar Bumbuskvísu í kvöldmatinn en það var ekki til neinn fiskur í Hagkaup!! Greinilega ekki ætlast til að fólk borði fisk á jólunum. :lol: Nema allir hafi verið komnir með leið á kjöti og hreinlega tæmt fiskborðið! Gerði í staðinn rétt úr afganginum af kalkúninum sem svipaði mjög til fiskréttarins. Reif kalkún í botninn á
eldföstu móti. Dreifði yfir 2 dl af sýrðum rjóma + 40 g létt majó + Piri piri + kalkúnakrydd frá Pottagöldrum og svo loks setti ég steikt grænmeti efst. Svo bakaði ég þetta við 180° í 30 mínútur. Þetta varð mjög gott, kalkúnninn drakk í sig sýrða rjóma blönduna og varð mjúkur og savory. Jömmíjömmí. Ábyggilega gott með kjúklingaleyfum líka. :)

Ég er annars farin að dauðhlakka til að taka myndir og mæla mig alla í bak og fyrir, vona bara að það verði í næstu viku!! Mér finnst ég vera farin að sjá svo mikinn mun á mér í speglinum, vona að ég sé ekki bara að ímynda mér það. :lol:

En jæja, stór dagur á morgun svo maður ætti nú að halda í heyið. Heyrumst á næsta ári! :D

1 svar to "Dagur hundrað sjötíu og níu"

Blessuð Dídí – mig langar svo mikið til að sjá myndirnar af þér……má ég það??

kv. Ása Dóra

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

desember 2007
M Þ M F F L S
« nóv   jan »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31