Dídí í átaki

Dagur hundrað sextíu og fimm

Posted by: Dídí on: 17. desember, 2007

Brunch
100 g hamborgari
1 spælt egg
60 g hamborgarabrauð
3 tsk tómatsósa
100 g steiktir sveppir
100 g grænmeti á borgara
100 g tómatar og rófur
Appelsínusafi
10 g olía

Kvöldmatur
130 g kjúlli
300 g tómatsúpa
100 g salat

Eftir mat
2 dl hrein jógúrt
1 dl undanrenna
10 g olía
6 sveskjur
1 granatepli

Yfir daginn
2 lítrar vatn
Bætiefni

———————

Ég hef góða tilfinningu fyrir þessari viku varðandi léttinginn. Verður gaman að sjá hvort það stenst. :)

Í dag ætla ég að reyna að taka smá til og/eða þrífa. Er að reyna að gera alltaf smá á hverjum degi til að passa bakið og mjaðmirnar og allt þetta drasl. Gengur bara svona ágætlega. Langar ofsalega til að setja upp ljós og hillur, sem ég er búin að eiga lengi, fyrir jól. Veggirnir hérna eru svo harðir að ódýrari heimilisborvélar ráða ekki við þá. Langar svo að hafa fínt í kringum mig! Sérstaklega þar sem þetta verða okkar fyrstu jól sem við eyðum aðfangadeginum á okkar eigin heimili.

Annars gengur danski bara glimrandi. Finnst stórmerkilegt að fyrir ekki lengra síðan en fimm mánuðum tróð ég fisk ofan í mig einu sinni í viku með herkjum og núna er ég farin að borða fisk að lágmarki fimm sinnum í viku og án allra herkja! Svona er maður nú fljótur að breyta venjum.

———————

Vika 50
Skyldan

Fiskur 5x
Egg 4x
Lifur 1x
Kjöt 3x

Valið
Magur ostur 2x
Feitur ostur 4x
Morgunkorn 2x
Kjúklingur 2 1/2x

Extra 2
Notaðir 9 af 21 extra krossum

Annað
Ávöxt skipt út fyrir kolvetni 1x

Sjö dagar til jóla!

Sjö dagar til jóla

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

desember 2007
M Þ M F F L S
« nóv   jan »
 12
3456789
10111213141516
17181920212223
24252627282930
31