Dídí í átaki

Dagur hundrað fjörutíu og fjögur

Posted by: Dídí on: 26. nóvember, 2007

Brunch
110 g hamborgari
60 g hamborgarabrauð
3 tsk tómatsósa
30 g steiktir sveppir
70 g grænmeti á hamborgara
1 spælt egg
5 g olía
200 g hrátt grænmeti
2 glös kók zero
2 klementínur

Snarl
1/2 japönsk pera (u.þ.b. 130 grömm)

Kvöldmatur
130 g nautahakk
250 g steikt grænmeti
150 g passata
1/2 dl sýrður rjómi
2 glös kók zero

Eftir mat
2 dl Bíóbú jógúrt
1 granatepli
15 g olía (gleymdist þar til þá)

Yfir daginn
2 lítrar vatn
Bætiefni

————————

Mmm… hamborgararnir sem kallinn minn gerir eru geggjaðir! Mér tekst alltaf að klúðra hamborgaraeldamennsku þrátt fyrir að vera góð í eldhúsinu á öðrum sviðum. Finnst geggjað að fá mér svona stóran brunch á sunnudögum, mæli með því. :)

Annars þá keypti ég svokallað 4% hakk í Kjöthöllinni Skipholti fyrir helgi og eldaði ég gær. Það leit voða vel út, lítið af sjáanlegri fitu. Hinsvegar þegar ég tók til við að steikja það rann þvílíkt af því. Hvort það var fita eða hvort kjötið hafi hreinlega verið vatnsprautað veit ég ekki. Það sem áttu að verða 4 skammtar handa okkur, 2 í matinn, 2 til að frysta, urðu 3 skammtar. Fyrir steikingu var kjötið 600 grömm, eftir aðeins 420 grömm!! Ég er eiginlega frekar fúl með þetta. Þoli ekki þessa vatnssprautun og svona. Bara verið að plata neytandann! Er þetta virkilega löglegt?! *urr*

Annars þá var ég í gærkvöldi að klára annan fjarnámsáfangann minn. *jeij* Á þá eftir að skila tveimur verkefnum í þýsku + munnlegt próf sem er á morgun. :?

Matarvikan
Skyldan
Fiskur 6x
Lifur 1x
Egg 4x
Kjöt 3x

Val
Magur ostur 2x
Feitur ostur 3x
Morgunkorn 2x
Kjúklingur 2x

Extra 2
Notaðir voru 16 af 21 kross.

Að auki
Ávöxt skipt út fyrir brauð 2x og eitt skipti gleymdist einn ávöxtur.

Skildu eftir svar

Nýleg ummæli

Gerður við Enn á lífi
Ása Dóra við Enn á lífi
Ragga við 21. jan
Ingibjörg við 21. jan
Hérinn við 21. jan

Lykilorð

Myndasíðan er læst. Ef þú hefur áhuga á að skoða myndirnar skildu þá eftir athugasemd við færslu og passaðu að skrifa tölvupóstfangið þitt í þar til gerðan reit.

Blog Stats

  • 82,956 hits

a

Sarpur

 

nóvember 2007
M Þ M F F L S
« okt   des »
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930