Posted by: Dídí on: 19. nóvember, 2007
Brunch
2 egg
75 g magur ostur
60 g brauð
150 g steikt grænmeti
150 g hrátt grænmeti
10 g olía
1 1/2 dl appelsínusafi
2 glös kók zero
Snarl
5 piparhnetur
3 dl undanrenna
Kvöldmatur
1 Ning DDV kjúlingabaunaréttur
2 glös kók zero
5 g olía
Eftir mat
1 banani
1/2 granatepli
5 g olía
2 dl undanrenna
Yfir daginn
1 1/2 l vatn
Bætiefni
————————
Átti afar erfiðan dag í gær. Varð ótrúlega pirruð og reið og fúl um miðjan dag og langaði til að hætta þessu bara. Var komin fram á fremsta hlunn að panta mér bara pizzu. Samt er svo skondið að ég hafði alveg fulla stjórn á þessu. Þrátt fyrir að hafa viljað hætta þá vildi ég það aldrei nema svo 30%, hin 70% vildu það bara ekki neitt, vissu að þá yrði ég bara ennþá reiðari og fýldari og ég vissi líka alveg að ég vildi ekki eyðileggja minn góða árangur.
Úr því varð þá að fá sér kjúklingabaunarétt á Nings, þrátt fyrir afar slæma reynslu af þeim rétti, bæði í bragð- sem og vigtunardeildinni. En það var eini skyndibitinn sem var 100% (átti eftir kjötskammt) og því skellti ég mér á slíkt. Ég varð brjáluð þegar kallinn kom heim með þetta. Sá að þetta var allt allt of lítið og ákvað að vigta. Baunirnir vógu 88 grömm þakka þér fyrir!!! Þið sem ekki vitið þá á baunaskammturinn að vega 170 grömm og þarna var ég því að fá aðeins rúman helminginn af prótínskammtinum! Grænmetið voru svo engin 300 grömm heldur 250.
Ég át þetta og fékk smá lambakjöt hjá kallinum til að reyna að fylla prótínskammtinn. En ég er allavega frekar pissed. Maður er að eyða morðfjár í þetta SVO maður geti sleppt því að elda og vigta. Maður á að geta treyst á þá, annars fellur þetta náttúrulega bara um sjálft sig.
En ég er allavega ekkert á leiðinni að hætta, verð bara að eiga tilbúna einhverja rétti í frystinum sem ég get gripið í þegar svona hellist yfir mig.
Vikan
Skylda
Fiskur 4 1/2 x (þar af feitur 3 1/2 x)
Lifur 1x
Egg 4x
Kjöt 3x
Val
Magur ostur 4x
Feitur ostur 3x
Morgunkorn 3x
Kjúklingur 1x
Extra 2
Notaðir 13 1/2 af 21 krossi
Að auki
Ávexti skipt út fyrir brauð 2x.
Þetta er einmitt það sem mig hefur oft grunað! Finnst þetta grænmeti bara vera upp í nös á ketti. Ég veit að í fyrra eða árið þar á undan fór Kristín vigtarráðgjafi á alla staðina til að koma þessum málum á hreint…. en það hefur greinilega ekki gengið eftir.
Annars hætti ég að kaupa nings í sumar eftir að ég fór að fá alveg svakalega magakrampa af og til… og alltaf eftir að hafa borðað mat frá þeim
ohh þetta er svo ömulegt! ég hef reyndar aldrei fengið mér svona á nings og ætla mér ekkert að gera það miðað við þessar sögur ykkar!
Gangi þér vel!
Sæl
Oh ég sem var svo glöð þegar ég byrjaði á DDV að NINGS var í boði og hef fengið mér 2x, ætla sko að gera athugasemd næst þegar ég fer þangað -ef ég geri það þá.
Sé að þér hefur gengið vel síðan í sumar -þó svo að sé e-ð pínu á móti akkútat núna. Það væri gaman og ekki síst hvetjandi fyrir mig nýliðan að fá að skoða myndirnar þínar.
Gangi okkur vel í baráttunni!
kveðja
Gerður
19. nóvember, 2007 kl. 15:32
What! Á hvaða Nings stað var þetta keypt?