Posted by: Dídí on: 3. júlí, 2007
Ég var að stofna þetta blogg til að nota sem rassspark þegar ég er að falla.
Ég ætla að fara á danska kúrinn, mæti á byrjendafund núna á miðvikudaginn og svo ætla ég að skella mér í þetta. Ég er einnig þrisvar í viku í sjúkraþjálfun svo eitthvað ætti að gerast hjá mér.
Ég er pínu hrædd um að ég sé að fara of geist í þetta og muni þá gefast upp, ég er reyndar alveg tilbúin undir þetta og vona það besta. Ég mun þá frekar draga aðeins úr hörkunni í mataræðinu en viðhalda hreyfingunni enda.
Vona að sem flestir muni kommenta hjá mér og styðja mig enda er þetta mikið verk sem ég á fyrir höndum.
Ykkur er velkomið að linka á mig ef þið viljið.
Kv, Dídí í átaki
Já elskan mín! You can do it!! Ef þú vilt í alvörunni grennast og komast í betra líkamlegt form þá getur þú alveg gert það, viljinn er allt sem þarf. Um leið og þú kemst upp á lag með matarræðið og hreyfinguna þá verður þetta ekkert mál
Gangi þér vel
Þetta er ekkert mál eftir smá tíma og þér líður miiiiiikið betur
Það er ekki hægt annað en vera glaður þegar unnið er að settu marki!
jaya
3. júlí, 2007 kl. 10:08
Sæl DÍDÍ og takk fyrir innlitið á síðuna mína
Um að gera drífa sig á byrjendarfundin hjá DDV það gefur manni svo mikið
Ég setti link á síðuna þína vona að það sé í lagi.
Kveðja
Mjóna